Fara í efni
SjálfanRekstur & Tækni
Sjálfan / Kerfistengingar

Kerfistengingar

Kerfin þín eiga að tala saman.

Þegar sama viðskiptavin, bókun eða pöntun þarf að skrá aftur og aftur er vandinn oft á milli kerfanna. Við skoðum hvernig gögn geta farið á milli með skýrri ábyrgð og yfirferð.

Byrjum í tölvupósti. Fundur er valfrjáls.

Þegar handavinnan verður hluti af kerfinu.

Starfsmaður afritar upplýsingar úr bókun eða CRM yfir í reikningsgerð. Breyting berst í tölvupósti en skilar sér ekki í öðrum kerfum. Í lok mánaðar þarf að bera listana saman til að finna mismuninn.

01

Viðskiptavinagögn á réttum stað

Skilgreinum hvaða kerfi á grunngögnin, hvaða reiti þarf að samræma og hvernig tvískráningar eru greindar áður en gögn eru uppfærð.

02

Frá pöntun í bókhald

Kortleggjum pöntun, greiðslustöðu og reikningsdrög. Fjármálagögn fara eftir umsömdum reglum og frávik í yfirferð hjá ábyrgðaraðila.

03

Sýnilegt þegar eitthvað stöðvast

Hönnum villumeðhöndlun, endurkeyrslu og tilkynningar svo biluð tenging verði ekki ósýnilegur hluti af daglegum rekstri.

Svona gæti flæðið litið út.

Sýnidæmi · mögulegt vinnuferli, ekki niðurstaða viðskiptavinar

Í dag

Bókun → afritun í CRM → afritun í bókhald → samanburður í Excel

Möguleg útfærsla

  1. 01

    Bókun eða pöntun

  2. 02

    Gagnaprófun og vörpun

  3. 03

    CRM / reikningsdrög

  4. 04

    Frávik í yfirferð

Markmiðið er ein skráning og rekjanleg færsla milli kerfa. Fjármálastaðfesting getur áfram verið hjá starfsfólki.

Það sem þarf að kanna fyrst

Tenging ræðst af API-aðgangi, leyfum, gagnagæðum og skilmálum kerfisveitenda. Takmarkanir á fjölda kalla, gjöld eða vantar vefkróka geta breytt útfærslu. Við lofum ekki tengingu við tiltekið kerfi fyrr en aðgangur og skjöl hafa verið skoðuð. Stundum er reglulegur skráarflutningur raunhæfari en rauntímatenging.

Spurt og svarað

Áður en við byrjum.

Kynntu þér vinnulag Sjálfunnar
Getið þið tengt hvaða kerfi sem er?

Það þarf að kanna hvert kerfi. Sendu heiti kerfanna og hvaða gögn eiga að fara á milli. Ekki senda lykilorð eða API-lykla í fyrsta erindi.

Þarf að skipta um núverandi kerfi?

Ekki endilega. Fyrsta skrefið er að kanna hvort núverandi kerfi styðji við ferlið. Skipti geta verið óþörf ef hægt er að tengja þau eða breyta vinnulaginu.

Hvað gerist ef tenging bilar?

Í hönnun þarf að ákveða hver fær tilkynningu, hvernig færslur eru raktar og hvernig er komið í veg fyrir tvíteknar aðgerðir við endurkeyrslu. Viðhald og ábyrgð eru afmörkuð fyrir innleiðingu.

05 / Hefjum samtalið

Hvað viltu einfalda eða byggja?

Sendu okkur spurningu eða nokkrar línur um það sem þú vilt bæta. Við svörum í tölvupósti og tökum næsta skref þaðan.

Bæta við upplýsingum (valfrjálst)

Við förum með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og notum þær eingöngu til að svara erindi þínu. Lesa persónuverndarstefnu.

Fá tillögur og gróft verðmat

Viltu fara nánar yfir kerfin og verkefnin? Fylltu út verkefnalýsingu og fáðu fyrsta mat í tölvupósti.

Hvað gerist næst?

  1. Við lesum lýsinguna þína.
  2. Við svörum í tölvupósti og spyrjum nánar ef þarf.
  3. Þú færð tillögur og gróft verðmat þegar nægar upplýsingar liggja fyrir. Fundur er valfrjáls.